Skilmálar

Að skipta og skila vöru 

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. 

Gölluð vara 

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um neytendakaup nr.48/2003 og laga um neytendasamninga. 

Vinsamlegast sendið tölvupóst á gudrun@gudrunolof.com varðandi skil eða endurgreiðslu á vöru. 

Persónuvernd

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. 

Guðrún Ólöf notar Google Analytics, Facebook Analytics og Shopify Analytics til vefmælinga og safnar m.a. upplýsingum um aldur og kyn.  

Upplýsingunum er safnað til að miðla til viðskiptavina upplýsingum í markaðslegum tilgangi.

Almennt

Seljandi er Guðrún Ólöf, kennitala: 051168-4379, Látraströnd 5, 170 Seltjarnarnes. Sími: 862 4777.  Netfang: gudrun@gudrunolof.com

Guðrún Ólöf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

Afhending vöru 

Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Guðrún Ólöf fyrirtækis) ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Guðrúnu Ólöfu til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. 

Verð á vöru og sendingakostnaður 

Öll verð í vefverslun eru í íslenskum krónum með virðisaukaskatti. Sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Íslandspósti beint heim að dyrum. Sendingakostnaður er 500 kr. 

Úrlausn ágreiningsmála

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir  Héraðsdómi Reykjaness.  Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða móttaka vöru á sér stað.